þeir kæfðu börnin okkar

Baráttan fyrir réttlæti og eðlilegu samfélagi virðist ekki vera að skila miklu, þeir aðilar sem telja sig tilheyra stjórnvöldum tala í frösum um að verð sé að vinna á fullu en sú vinna sé bara undir yfirborðinu.

Á meðan eiga hundruðir ef ekki þúsundir heimila erfitt eða jafnvel ómögulegt með að ná endum saman, börnin þurfa kannski að éta hafragrjón í vatni í hvert mál þar sem ekki er til annað á heimilinu.

Ég spyr þvi senda Jóhanna og Steingrímur ekki bara af stað sveitir til þess að kæfa börnin okkar, þau virðast ælta sér að drepa þau með aðgerðarleysi sínu og marklausum aðgerðum.


Þöggun í fjölmiðlum

Sendi Boga Ágústssyni eftirfarandi bréf í dag...

 

 nú á dögunum var rætt við Gunnar Tómasson Hagfræðing í Kastljósi og er að mínu mati um eitthvert athyglisverðasta viðtal síðan í byrjun kreppunnar að ræða þar sem hann vitnar m.a. í lög sem segja til um að svokölluð myntkörfulán séu ólögleg, mér hefur þótt einkennilegt hvað það hefur verið rætt lítið um þetta viðtal og hve lítið hefur verið unnið í fjölmiðlum út frá þvi ( eins og verið sé að þagga niður þessa umræðu ) þar sem hérna er um að ræða gríðarlegt hagsmunamál fyrir almenning. Í gær fór vinur minn sem er með myntkörfulán  hjá SP fjármögnun og ræddi þetta við fjármálastjóra fyrirtækisins, en fékk þau svör að SP myndi ekki á neinn hátt bregaðst við þessum fréttum og halda áfram að rukka inn óbreytt alveg þar til einhver færi með þetta fyrir dómstóla og fengi niðurstöðu þaðan í málið...

Mér finnst alvarlegt ef þessu máli er ekki fylgt eftir af fjölmiðlum af fullum krafti þar sem nokkuð ljóst er að það er verið að brjóta lög á almenningi í hagnaðarskyni ( þjófnaður ) og fela sig bak við þekkingar kjarkleysi almennings i þeim efnum.

Endilega farið nánar í þetta okkar fólksins í landinu vegna

kv
Steinar Sörensson


Það er til lausn - sem gerir okkur kleyft að standa við Icesave

 

kunningi minn kom að þessu í spjalli sem við áttum í dag, og benti áað afhverju ætti að láta almenning blæða fyrir óreglu nokkura glælpamanna er ekki nær að þeir fái að blæða fyrir sína glæpi

Hún er mjög einföld og myndi eflaust skapa hundruðir starfa, og felst í þvi að þjóðnýta allar eigur þeirra sem komu okkur í þessi vandræði.

 Þar með talið allar Bónus Verslanirnar, Hagkaups verslanirnar, 10/11 verslanirnar,  Iceland Express, Vodafone, Símann, Tal og tugi annara stórfyrirtækja á landinu sem eru og hafa verið í eigu þessara glæpamanna. 

 


Vonarglæta í myrkri auðvaldsins

Ég tek ofan fyrir þér gröfumeistari !!!!!!!!!!
mbl.is Eyðilagði íbúðarhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tek ofan fyrir þér gröfumaður

Þetta er eina vitið, bankarnir sýna fólki í erfiðleikum enga samúð, þvi hef ég fengið að kynnast sjálfur, ég legg til að allir þeir sem eru neyddir út af heimilium sínum af lánastofnum grípi til einhverra viðlíka aðgerða.

Það myndi kalla á að mannlegi þátturinn yrði meira metinn þvi þarna tapa bankarnir gríðarlegu fé ef fólk fer að gera þetta í massavís.

og ef fólk er hvort eð er að verða gjaldþrota þá skiptir engu máli hvort það bæti aðeins ofan á það.

Ég sendi auðvaldinu fingurinn - þetta er bara byrjunin sem þið eruð að sjá hér, það var ekki lengi verið að handtaka þennan því hann var að skemma fyrir bankanaumn, en þeir sem stjórnuðu bönkunum og eyðileggja fyrir fólkinu í landinu ganga enn lausir - viðbjóður !


mbl.is Bankinn fékk ekki lyklana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausn á fjárhagserfiðleikum Íslendinga í sjónmáli

Ýmsar hugmyndir hafa komið upp um hvernig á að leysa það fjárhagslega öngþveiti sem hér hefur myndast, margir hafa þegar flúið land og margir eru á leiðinni að flýja land.

Þegar ég lagðist undir feld í dag í einar 20 mínútur kom til mín hugmynd sem ég tel að ætti að framkvæma. Því í henni er falin uppbygging heimilanna í landinu og uppbygging atvinnu í landinu.

Fórnirnar sem þessi hugmynd hefur í för mér sér munu fyrst of fremst verða til þess að byggja þarf bankakerfið upp á nýtt, en með þá þekkingu sem við höfum hér á landi yrði það ekki mikið mál.

Lausnin felst í þessu, afskrifa allar skuldir heimila landsins, húnæðisskuldir, bifreiðaskuldir, yfirdrætti og annað sem heimilin skulda bönkum og fjármálastofnunum.

Við þurfum að fórna bönkunum, jafnvel íbúðalánasjóði, og einhverjum fleiri fjármálafyrirtækjum, en í staðinn fegjum við heimili sem væru án skulda og þvi gætu menn farið í það að nota fjármagn sitt sem það ynni fyrir og ekki færi í neyslu til að byggja upp atvinnustarfsemi fyrir aðra,

Þekking bankanna yrði notuð til að halda úti bankareikningum og fjármagnsflutningum við útgreiðslu launa á ábyrgana og öruggan hátt.

Lífeyrissjóðina væri síðan hægt að nota til þess að byggja upp nýjan íbúðalána og lífeyrissjóð sem fyrst og fremst fjárfesti í húsnæði. Og væri til lengri tíma ætlaður til þess að fjármagna eftirlauna lífeyri landsmanna einnig.

Með þessu móti náum við að byggja upp nýjan grunn undir nýtt samfélag og brjótum niður gamla grunninn í stað þess að ætla að reisa eitthvað á rústunum sem kanna að falla í höfuðið á okkur seinna.

Burt með þann hugsunarhátt sem setti okkur á kaldan klaka, hlýjum okkur við nýjar hugmyndir.

Þetta eru mínar persónulegu skoðanir, en ég tek það einnig fram að ég er í 10 sæti á lista Borgarahreyfingarinnar í Suðurkjördæmi.

 

 

 


Niðurstaða mín úr kosningakompás á mbl.is áhugavert

Kosningakompás mbl.is - niðurstaða - Þessi niðurstaða er alveg í fullu samræmi við það sem ég ætla að kjósa. Skemmtileg leið til að átta sig á hlutunum.

Hér að neðan er niðurstaða fyrir mig skv þeim svörum sem ég veitti og svaraði eftir minni bestu sannfæringu.

Samsvörun svara þinna við svör flokkanna er sem hér segir:

Flokkur Samsvörun
Borgarahreyfingin (O) 84%
Samfylkingin (S) 70%
Vinstrihreyfingin - grænt framboð (V) 64%
Framsóknarflokkur (B) 64%
Frjálslyndi flokkurinn (F) 63%
Lýðræðishreyfingin (P) 62%
Sjálfstæðisflokkur (D) 36%

Mikilvægi þess að velja rétt í komandi kosningum

  b_300_189_14277081_boggi_830979_831056.jpg                                                                                                                                                             í ljósi þess sem á undan er gengið í Íslensku samfélagi hefur aldreí verið mikilvægara en nú að velja rétt í komandi kosningum, og hvað á ég við með rétt, í fyrsta lagi er mikilvægt að þeim sem bera ábyrgð á hruni íslensks efnahagslífs, þ.e. Sjálfstæðismönnum, Framsóknarmönnum og Samfylkingarmönnum, verði ekki verðlaunaðir fyrir það hvernig fyrir okkur er komið.

 Ástæðan er einföld og sú sama og ef þú verðlaunar óþekkt barn fyrir hegðun sína, sú hegðun styrkist og verður algengari, eins er það með þessa flokka þeir munu halda áfram sömu vitleysunni og áður verði þeir verðlaunaðir með atkvæðum fólks.

Því legg ég til að þeir sem þá höfðu ætlað að kjósa merki við aðra flokka.  Borgarahreyfingin er frábær kostur, svo og einnig VG þar sem þeirra ábyrgð er ekki teljanleg þar sem þeir hafa ýtrekað barist gegn þvi sem hingað kom okkur, vandinn við VG er kannski helst sá að eftir að þeir komust að í 80 daga stjórninni hafa þeir snúið sér meira að fjármagnseigendum en almenningi, og ef það er það sem koma skal ætti fólk að varast að gefa þeim atkvæði sitt.

Þvi legg ég til að XO verði það sem þú og þínir merkið á kosningaseðilinn í komandi kosningum. Stefnuskránna má lesa hér á www.xo.is

 

b_300_189_14277081_boggi_830979.jpg


Og hann reis upp á 3. degi

Gleðilega Páska - Bræður og Systur - rísum upp frá dauðum líkt og kristur og lagfærum það sem aflaga hefur farið í okkar samfélagi.

Stríðsyfirlýsing

Í kvöld fengum við bréf frá Nýja Kaupþingi sem var Greiðsluáskorun á bréfi
sem hafði áður verið í eigu gamla kaupþings.

upphaflegt lán var 1.500.000kr
Búðið var að greiða um 1/3 af láninu, en við hættum að greiða af þvi við fall
bankanna þar sem við teljum nyja kaupþing banka ekki hafa lagalega heimild til
þess að innheimta þetta án okkar samþykkis og hef ég bréf frá
fjármálaeftirlitinu sem ég tel að megi túlka á þann veg,
gjaldfelldur höfuðstóll er orðinn 1.479.618
Ofan á þetta bæta þeir síðan kostnaði þannig að skv þeim stendur skuldin í
1.832.483 kr

Hér er bréf sem ég skrifaði lögfræðiinnheimtu kaupþings nú í kvöld.

Til Guðrúnar Jónasdóttur - Lögfræðiinnheimtu

23.03. 2009

Sæl Guðrún við hjónin fengum sent bréf frá þér sem er greiðsluáskorun vegna
skuldabréfs 0300 00 3975.

Þar er m.a. tilkynnt að höfuðstóll hafi verið gjaldfelldur og okkur hótað
nauðungarsölu á veðinu.

Einnig er ranglega farið með í þessu bréfi að upphaflegur kröfuhafi sé Nýji
Kaupþingbanki hf.

En bréfið var upphaflega tekið hjá Gamlakaupþingi og höfnum við rétti
nýjakaupþings til innheimtu þess, þar sem nýjikaupþing banki hafnaði þvi að
færa eftirfarandi klausu inn í bréfið "

 " Þetta er breyting á láni áður teknu af Önnu Kristínu Magnúsdóttur hjá Kb
Banka kt 560882-0419, komi það í ljós að yfirtaka nýja Kaupþings á skuldinni
hafi ekki reynst lögmæt og í samræmi við Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands,
fellur þetta bréf úr gildi og greiðast greiddar afborganir til nýja Kaupþings
til baka með löggiltum dráttarvöxtum." "

Í bréfi sem ég hef frá fjármálaeftirlitnu kemur fram að Umrædd meginregla sem
stuðst var við, við yfirfærslur lána frá gamla kaupþingi til þess nýja án
samþykkis skuldara hefur ekki verið lögfest og getur þvi ekki talist annað en
ólögleg.

Með þetta að leiðarljósi höfðum við óskað eftir afskráningu skuldarinnar þar
sem nýji kaupþing banki er ekki rétthafi hennar skv þessu.

í bréfinu er vísað til þess að ekki þurfi dóm eða sátt eða fjárnám til þess að
getað gengið að veðinu, en ég vil minna á það að við gerðum engan samning við
ykkur hjá nyja kaupþingbanka heldur við gamlakaupþingbanka og kemur kennitala
hans fram í skuldabréfinu en ekki ykkar kennitala.

Auk þessa eru í gildi bann við nauðungarsölum og verð ég að líta á hótanir sem
þessar sem stríðsyfirlýsingu og árás á mína fjölskyldu sem ég tel skildu mína
að verja með öllum tiltækum ráðum beri svo við, verði ekki fallið frá þeim, með
ófyrirséðum afleiðingum fyrir nýjakaupþing banka sem virðist ætla að beita
ólöglegum handrukkara aðferðum við innheimtu sína, ég mun líta á hvern þann
sem undir svona hótanir skrifar sem persónulega ábyrgan og þýðir ekkert að bera
hér við starfsheiti eða fela sig bak við einhverja deild innan bankans.

Þið beitið jafnframt ólöglegum álögum og innheimtukostnaði á bréfið sem þig
eigið ekkert í.

Ég óska eftir svari frá ykkur með þetta hið fyrsta og mun senda ráðherrum í
Ríkisstjórn Íslands afrit af þessu bréfi mínu til ykkar.

Virðingarfyllst
Steinar Immanúel Sörensson
eiginmaður Önnu Kristínar Magnúsdóttur.
Suðurgötu 27
230 Reykjanesbæ
sími 6975441


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband