Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

jibbíííí....

og enn þráast Geir Harði við að lækka lítrann, það fer kannski illa í hann þar sem það gæti lækkað verðbólguna...
mbl.is Allir hækka bensínið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á Lögreglan að ljúga ?

Ég horfði á viðtal við aðstoðarlögreglustjóra í Kastljósi þar sem hann bar af lögreglunni sakir um að hlera síma vörubílstjóra, það sem var athyglisvert þegar hann svaraði var líkamstjáning hans sem einfaldlega sagði annað en það sem kom út úr munni viðkomandi, ef myndbandið er skoðað má sjá sékennilegan kipp í neðrivör aðstoðarlögreglustjórans um leið og spurningunni hefur verið svarað og er þessi kippur merki um ósannindi þar sem undivitund hans er ófær um að ljúga og kallar fram þessi viðbrögð. Mér þykir þvi ljóst að lögreglan sé án heimildar að brjóta lög með þvi að hlera síma einhverra vörubílstjórnanna.


Þeim er að takast að kæfa umræðuna

Stjórnmálamönnum er að takast að kæfa umræðuna í samfélaginu um of hátt olíuverð og vaxandi erfiðleika á Íslandi, Geir Harði virðist ætla að ná að telja þjóðinni trú um að Trukkabílstjórar séu vondir menn sem setja almenning í hættu, en neitar jafnframt að leita leiða til að gera almenningi lífið auðveldara og lækka t.d. álögur á eldsneyti, gaf út í hádeginu á stöð 2. að háu eldsneytisverði væri um að kenna verði á mörkuðum og að þær álögur sem á eldsneyti hafa verið, hafi verið lengi við lýði, ekki var hægt að skilja það öðruvísi en svo að ríkisstjórninni væri sama og að þeir hyggðust ekki gera neitt í málinu.

Ríkisstjórnin hikar ekki við að brjóta lög og get ég komið með dæmi þar sem ég veit til þess að Menntamálaráðuneytið hefur brotið lög með þvi að taka ekki á því hvernig nemenda vali inn í Gull og Silfursmíði við Iðnskólann í Reykjavík er háttað en það er ekki í samræmi við lög og námskrár fjölbrautaskóla. - Menntamálaráðuneytið hefur vísvitandi horft fram hjá þessu háttalagi og hefur meðvitað ákveðið að gera ekkert í málinu sem gerið þá samseka í lögbrotinu. Þetta mál er nú á borði umboðsmanns alþingis en treglega gengur fyrir hann að fá svör frá menntamálaráðuneytinu því þeir hafa engin og mætti halda að þeir séu að reyna að kæfa málið með einhverskonar þófi.

Þegar almenningur fer að stað og vill láta í sér heyra er lögreglan send á staðinn með kylfur og gas og heimild til að beita ofbeldi. Hvað er að okkar samfélagi þegar Ráðherrar geta ekki tekið minnstu ábyrgð og sýnt fram á að þeir séu reiðubúnir að vinna með almenningi. Sýniði nú lit en ekki þjrósku og hroka hr Geir og mr Árni

 


Er þetta ekki einum of ?

Mótmæli vörubílstjóra eiga svo sannarlega rétt á sér þó svo að mér finnist þetta of langt gengið, grjótkast sem þetta getur haft alvarlegar afleiðingar og ætti alls ekki að eiga sér stað, þetta var enginn smá hnullungur sem þarna sést og getur valdið alvarlegum skaða. Og að fá þetta í höfuðið getur einfaldelga drepið menn.

Ég er þó ekkert hissa á að uppúr sé að sjóða þvi sofandaháttur Fjármálaráðherra og Forsætisráðherra er með ólíkindum, þó svo að laun þeirra dugi fyrir matarreikningi heimilisins og eldsneytiskostnaði sem ég efast um að þeir þurfi að greiða sjálfir þá er það ekki svo fyrir alla, það er aðeins eitt sem stoppar ólguna í samfélaginu og það er að lækka gjöld á matvælum og eldsneyti án tafar

- 40 kr lækkun tímabundið á hvern litra af bensíni og disel

- Niðurfelling skatta af barnavörum án tafar.


mbl.is Lögreglumaður á slysadeild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lausnir í sjónmáli ?

Ég velti stunum fyrir mér hvort stjórnmálamenn séu í störfum sínum af áhuga eða vegna valdahroka og stjórnunar græðgi, undanfarið hefur farið frekar lítið fyrir flestum pólitíkusum hér á landi enda hafa þeir verið duglegir við að halda sig utan landsteinanna.

Ég spyr er ekki viturlegra að byrja á að taka til í garðinum hjá sjálfum sér áður en farið er að róta í og ráðleggja öðrum um tiltekt hjá þeim ?

Við búum samkvæmt stjórnendum þessa lands í einhverju ríkasta landi heims, skrítið að við hinn almenni borgari fáum ekki að njóta þessa ríkidæmis, og virðast svör stjórnmálamanna hvort sem er í uppgangi í samfélaginu eða niðursveiflu vera þau sömu, það er ekki tímabært miðað við uppganginn í dag, eða það er ekki tímabært miðað við núverandi ástand. Þetta eru sérkennilegustu svör sem ég hef nökkru sinni heyrt og virðast þau eiga við allt sem í gangi er.

Það er krafa mín sem borgara að ríkið minnki álögur á eldsneyti um ekki minna en 40 kr á lítra, það er einnig krafa mín sem föður að tollar og virðisauki verði felldur niður af barnafötum, bleyjum og tólum ætluðum til ungbarnauppeldis.

Á mínu heimili er venjan að versla svipað inn vikulega, og kostaði karfan okkar um á bilinu 6500kr til 7.000 kr á síðasta ári, nú hefur hún hækkað í rúmar 9500 kr fyrir sömu vörur þetta er þó nokkuð stór biti og talsverð kjaraskerðing hjá almennum borgara.

Um daginn sá ég tölur um meðallaun hér á landi og ég verð að segja að það er skömm af þvi að byrta svona vitleysu þar sem þetta á ekki við nein rök að styðjast, vel á 400 þúsund krónur voru talin vera meðallaun hér á landi, skoða ætti frekar fjölda þeirra einstaklinga sem eru í hverjum launahópi fyrir sig til að sýna fram á sanngjarnar niðurstöður og ekki svona bull.

Nú er verið að skoða það að setja hámark lyfjakostnaðar á alla á ári, 40.000 kr hvert er heilbrigðiskerfið okkar að fara ?

Við erum að horfa fram á almenna fátækt, vanrækslu og illa meðferð stjórnvalda á þegnum landsins sem þeir eiga að þjóna en ekki stjórna, og óviðunandi heilbrigðis, velferðar og hagstjórnar kerfi.

Hvað meira þarf að vera að til þess að gripið verði almennilega í taumana, það er kominn tími og tíminn er núna.

Kv

Steinar Sörensson


Auðjöfrarnir að brotna niður

Stundum veit maður ekki hvað er satt og hverju er logið, en eitthvert máltækið segir að sjaldan ljúgi almannarómur.

Nýverið heyrði ég að Kristinn Björnsson  fyrrum forstjóri Skeljungs hafi í kjölfar kreppunnar svokölluðu tapað glórunni í flugvél á leið til landsins og hans hafi beðið bæði lögregla og sjúkrabílar með spennitreyju að vopni sem hafi síðan flutt hann á viðeigandi stofnun.

Einnig var að heyra af sama rómi að Hannes Smárason sé nú staddur í meðferð á Vogi eftir fyllirýið limósínurnar og skýstrókana og kemur það kannski ekki á óvart sé tekið mark á öðrum orðrómi sem ég veit ekkert um en er sá að Hannes hafi verið duglegur að flytja hvíta kókið á milli landa. ( menn verða víst að hafa einhverja auka búgrein þegar hlutabréfin hrynja svona í verði .

Það þarf ekki að vera meira sannleikskorn í þessum orðómi heldur en þeim að Davíð Oddson hafi verið duglegur í kókaín snorkinu á veiðiferðum sínum um landið, eða að Hannes Hólmstein hafi fengið  lögfræðikostnað sinn greiddann af mæðrastyrksnefnd.


áfram áfram

Ef þetta eru vinnubrögð lögreglu þá er nú kominn tími til að endurskoða hegðun þeirra lögreglumanna sem láta svona vitleysu út úr sér, við þegnar þessa lands höfum hingað til átt að þegja og taka hverri þeirri vitleysu sem okkur er boðið upp á af ráðamönnum sem þurfa ábyggilega ekki einusinni að greiða eldsneyti á bíla sína sjálfir.

Síðan er mönnum leyft að mótmæla svo framarlega sem mótmælin eru ritskoðuð, eru pólitíkusar þessa lands nokkuð orðnir betri en kollegar þeirra í Kína, ef við hefðum her væri eflaust búið að skjóta einhverja bílstjórana.

Ríkið þvingar almenning til greiðslu hinna og þessara gjaldaog hóta síðan auknum þvingunaraðgerðum láti einhverjir í sér heyra, ef stjórnvöld hlustuðu á almenning þá þyrftu mótmæli sem þessi ekki að eiga sér stað.

Ég segi áfram áfram atvinnu bílstjórar, og nú er kominn tími til að almenningur stoppi bíla sína einnig hér og þar til þess að taka undir mótmælin. Gott gæti verið að láta 112 vita hvar á að mótmæla svo sjúkra og slökkvibílar geti þá notað aðrar leiðir.

 


mbl.is Bílstjórar: „Við höldum áfram"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

KLAPPA FYRIR ATVINNUBÍLSTJÓRUM

Loksins Loksins einhverjir sem þorað hafa að taka af skarið og mótmæla af alvöru, hinsvegar hefur maður vart getað annað en hlegið þegar lögreglan ( sem stjórnað er af sjórnvöldum ) býðst til að leiða bílstjórana í mótmælum gegn yfirboðurum þeirra.

Áfram atvinnubílstjórar, svona mótmæli mætu eiga sér stað ofar þegar ráðamenn geta ekki haft hag landsmanna í fyrirrúmi.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband