Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009
afskriftir til vildarvina kaupþings
7.2.2009 | 11:24
Maður veltir þvi fyrir sér hvort hér sé um afskriftir til vildarvina, stjórnenda og starfsmanna kaupþings að ræða, grunar mig að svo sé og að ekki sé verið að segja okkur hinum almennuborgurum rétt og satt frá.
Í samtali við kaupþing þar sem við hjónin vorum að vinna að þvi að fá skuldbreytingu á frekar lágu láni sem við vorum með hjá gamla kaupþing óskaði ég eftir að eftirtalin klausa yrði sett inn í samninginn áður en hann yrði undirritaður.
" Þetta er breyting á láni áður teknu af ( Nafn skuldara ) hjá Kb
Banka kt 560882-0419, komi það í ljós að yfirtaka nýja Kaupþings á skuldinni
hafi ekki reynst lögmæt og í samræmi við Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands,
fellur þetta bréf úr gildi og greiðast greiddar afborganir til nýja Kaupþings
til baka með löggiltum dráttarvöxtum."
sé yfirtakan með öllu lögleg er hér ekkert sem getur á nokkurn hátt skaðað bankann, en sé svo ekki er ég aðeins að tryggja rétt minn.
ég skora á aðra í sömu stöðu að fara fram á slikt hið sama, og er ykkur velkomið að nota þessa klausu ef þið viljið
kv
Steinar
|
Afskrifa tæpa þúsund milljarða |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Skuldbreyting lána
6.2.2009 | 08:03
Ég hef það á tilfinningunni að bankarnir séu að vinna ötullega að þvi að hlekkja niður fólk sem hafði skuldir hjá gömlu bönkunum, með þvi að senda innheimtubréf í nafni nýs banka út á lán sem voru tekin í þeim gamla, sjálfur vil ég halda þvi fram að hér sé um ólöglegan gjörning að ræða.
Við hjónin erum með eitt lán sem var hjá gamla Kb og var nýverð farið að rukka inn hjá nýja Kb, ég ákvað strax þegar hrunið var að hætta að greiða af þessu láni þvi með þvi að greiða af þvi til nýja kb væri ég að viðurkenna eign hans á láninu, þegar lánið var síðan komið til innheimtu fór ég fram á skuldbreytingu sem var svo sem ekkert illa tekið, en þegar ég fór fram á að eftirfarandi klausa yrði sett í bréfið kom annað á daginn, mér var sagt að það væri ekki hægt, ( kjaftæði )
" Þetta er breyting á láni áður teknu af ( Nafn skuldara ) hjá Kb
Banka kt 560882-0419, komi það í ljós að yfirtaka nýja Kaupþings á skuldinni
hafi ekki reynst lögmæt og í samræmi við Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands,
fellur þetta bréf úr gildi og greiðast greiddar afborganir til nýja Kaupþings
til baka með löggiltum dráttarvöxtum."
sé yfirtakan með öllu lögleg er hér ekkert sem getur á nokkurn hátt skaðað bankann, en sé svo ekki er ég aðeins að tryggja rétt minn.
ég skora á aðra í sömu stöðu að fara fram á slikt hið sama, og er ykkur velkomið að nota þessa klausu ef þið viljið
kv
Steinar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)






